Evróvisjón í skugga mannréttindabrota

Páll Óskar Hjálmtýsson. Ljósm. Dagur Gunnarsson.

Mannréttindabrot hafa varpað skugga á undirbúning Evróvisjón í Bakú höfuðborginni í Aserbadjan og hefur Evróvisjónspekúlantinn og poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson einnig vakið máls á þessum vanda.

Kristalshöllin í Bakú í Aserbajan er umdeild bygging. Hún mun hýsa Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva nú í vor. Vandinn er að Aserar hafa látið rífa heilt íbúðarhverfi til að rýma fyrir höllinni og að sögn BBC hefur hundruð manna verið vísað út á guð og gaddinn með litlum eða engum fyrirvara til að rýma fyrir henni.

Breska ríkisútvarpið hefur sagt frá því að fólkinu hafi boðist litlar bætur fyrir híbýli sín og þeir sem neita að fara sæta hótunum af ýmsum toga og jafnvel handtökum. Páll Óskar Hjálmtýsson einn helsti Evróvisjónsérfræðingur landsins hefur mótmælt þátttöku Íslands í keppninni að óbreyttu. Hér má hlýða á Víðsjár-viðtal við Pál Óskar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku