Sierra á jaðri velsæmismarka

Haraldur Jónsson myndlistarmaður. Ljósm. Dagur Gunnarsson
Í Listasafni Reykjavíkur stendur nú yfir umdeild sýning listamannsins Santiago Sierra. Sýningi þykir mjög róttæk og ögrandi. Hún er sögð vera á jaðri velsæmismarka. Dagur Gunnarsson og Haraldur Jónsson listamaður skoðuðu sýninguna í sameiningu.
Sýning Santiago Sierra hefur sterka tengingu inn í íslenskan veruleika í dag að mati margra. Þessi verk byggjast að mestu leyti upp á hráum myndbandsupptökum af gjörningum þar sem listamaðurinn hefur fengið fólk til að gera ýmsa ögrandi hluti. Viðkvæmt fólk er til að mynda varað við sumum verkunum. Það eru upptökur sem sýna fólk í samförum eða að fróa sér fyrir framan sjónvarpsvélar, fólk sem listamaðurinn hefur greitt sérstaklega fyrir að gera þetta.
Haraldur segist ekki vera í nokkrum vafa um að þessi verk hafi sterka skírskotun til þess veruleika sem við búum við hér á Íslandi. Hann segist sjá ádeileu í verkum Sierra sem megi heimfæra upp á hluti eins og til dæmis átaksverkefninu Inspired by Iceland.
Haraldur sér niðurlægingu útigangsfólksins og fíklanna sem Sierra borgar fyrir þátttöku í myndverkum sínum og gjörningum speglast í ýmsum hversdagslegum atburðum í íslenskum veruleika, sérstaklega í tengslum við bankahrunið og eftirmála þess.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








