Rými málverksins á Akureyri

Fyrsta sýning nýrrar Sjónlistamiðstöðvar á Akureyri opnar á morgun, laugardaginn 14. janúar, klukkan 15 í Listagilinu. Víðsjá ræddi við Einar Garibaldi Eiríksson, sýningarstjóra í þættinum í gær.

Rými málverksins nefnis sýningin en istamennirnir sem þátt taka í henni eru: Arna Óttarsdóttir, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Bjarni Þór Pétursson, Davíð Örn Halldórsson, Gunnar Már Pétursson, Halldór Ragnarsson, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jeannette Castioni, Kristín Rúnarsdóttir, Logi Bjarnason, Solveig Pálsdóttir og Þorvaldur Jónsson.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka