Viðar og Már Íslandsmeistarar

Flokkar: Íþróttir
Viðar Ingólfsson og Már frá Feti eru Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði - Mynd: Eiðfaxi.is


  • Prenta
  • Senda frétt

Viðar Ingólfsson og Már frá Feti urðu í gær Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði með einkunnina 8,08 á Íslandsmótinu í Hestaíþróttum á Vindheimamelum í Skagafirði.

Í öðru sæti urðu Sigurbjörn Bárðarson og Flosi frá Keldudal með 8,00 í einkunn og þriðju urðu Haukur Baldvinsson og Falur frá Þingeyrum með einkunn 7,96.

Úrslit úr gæðingaskeiði má sjá á síðu Eiðfaxa

Þá urðu Þórarinn Eymundsson og Bragur frá Bjarnastöðum Íslandsmeistarar í 100 metra skeiði annað árið í röð en Daníel Ingi Smárason og Hörður frá Reykjavík höfnuðu í öðru sæti og Sigurbjörn Bárðarson og Andri frá Lynghaga í því þriðja.

Úrslit úr 100 metra skeiði má sjá á síðu Eiðfaxa

Sýnt verður beint frá úrslitum Íslandsmótsins á RÚV í dag og hefst útsending klukkan 13.30.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku