Gamalt bréf fannst milli þilja

Bréfið var geymt í glerflösku og hefur varðveist vel. Munirnir sem fundust voru m.a. lykill, gafall, tindátar, armbönd og trétappi. (mynd og texti frá www.bb.is)

Gamalt bréf fannst á milli þilja í Norska bakaríinu við Silfurgötu á Ísafirði. Í niðurlagi bréfsins, sem er frá 1927 segir "Það er allra ætlan, að aldrei áður hafi atvinnuleysi og fjárskortur þrengt svo kosti íbúa þessa bæjar sem nú. Við óskum og vonum að þegar þetta blað kemur næst fyrir mannaaugu verið ástandið betra og horfurnar glæsilegri. Við sendum yður kærar kveðjur, þjer óþektu smiðir sem að rífið þetta hús, og gagnið þannig lögmáli þróunarinnar: Að bylta og byggja betur á ný."

Síðdegisútvarpið ræddi við Guðfinnu Hreiðarsdóttur, skjalavörð á Ísafirði um bréfið.

Í frétt Bæjarins Besta um fundinn http://bb.is/Pages/26?NewsID=173050 kemur fram að bréfið var geymt í glerflösku og hefur varðveist vel. Munirnir sem fundust með bréfinu meðal annars lykill, gafall og tindátar. Þá segir að ætlun núverandi eiganda, Gistingar ehf., sé að innrétta húsið sem gistiheimili en að utanverðu verði það gert upp samkvæmt tillögum Húsafriðunarnefndar og skal vera sem næst upprunalegu útliti.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku