Versnandi veður í kvöld

Búist er við miklum vindi á Kjalarnesi og undir Eyjafjöllum og Hafnarfjalli. Safnmynd.

Vegagerðin varar við því að veður fari mjög versnandi suðvestanlands í kvöld.

Skafrenningur og takmarkað skyggni verður á Suðurlandsvegi austur fyrir fjall strax um kvöldmatarleytið og hríðarveður verður um mest allt suðvestan- og sunnanvert landið frá því seint í kvöld eða snemma í nótt. Færð spillist fljótt við þessar aðstæður. Gert er ráð fyrir vindhviðum 30 til 40 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli frá því um klukkan níu í kvöld og þar til klukkan sjö í fyrramálið. Það verður einning mjög hvasst við Sandfell í Öræfum fram í nótt til klukkan níu í fyrramálið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku