Verð á gasi hækkar vegna kuldans

Víða í Evrópu er dýrara að elda á gasi en í síðustu viku. Mynd: Shutterstock

Gríðarleg verðhækkun hefur orðið á gasi í Evrópu vegna kuldans að undanförnu. Gasverð á Bretlandseyjum er orðið hærra en það hefur verið síðastliðin sex ár.

Gas til breskra heimila hefur hækkað í verði um 24 prósent frá því á föstudag. Í Frakklandi hefur gasverð hækkað meira þar sem erfitt er að láta framboð mæta eftirspurn. Á Ítalíu hefur verið ákveðið að skammta gas til iðnfyrirtækja. Ástæðan er að ekki hefur fengist nægjanlegt gas frá Rússlandi til þess að mæta eftirspurn.

Þá er hafin rannsókn á því í Rússlandi hvers vegna dregið hefur úr gassölu þaðan til Evrópuríkja um 30 prósent meðan á kuldakastinu hefur staðið. Sterkar norðanáttir frá Síberíu valda þessum kulda með hörkufrosti.

Á fjórða hundrað manns hefur dáið í Mið- og Austur-Evrópuríkjum, þar af að minnsta kosti 130 í Úkraínu. Kuldinn sem hrellir Evrópubúa nær nú einnig til Norður-Afríku. Í gær var snjókoma í Alsír. Nítján fórust þar í slysum vegna snjókomunnar, flestir í umferðarslysum. Í Líbíu var snjókoma og sömuleiðis í suðurhluta Túnis.  Þar snjóaði síðast fyrir 40 árum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku