Vel hefur gengið að losa bíla

Mynd: Guðmundur Bergkvist.

Vel hefur gengið að losa bíla ofan af Hellisheiði í dag. Snjóruðningstæki hafa verið notuð til að ryðja snjó frá bílum og þannig hafa ökumenn verið aðstoðaðir ofan af heiðinni.

Að sögn lögreglu eru fáir bílar þar núna. Suðurlandsvegur er þó enn lokaður frá Rauðavatni að Hveragerði þar sem töluverður skafrenningur er enn í Svínahrauni og við Litlu kaffistofuna. Tafir hafa orðið á hreinsun vegarins þar sem snjóblásari bilaði, en vonast er til að hann komist í lag fljótlega.

Suðurstrandarvegur er einnig lokaður. Vegagerðin reyndi tvisvar að ryðja hann í dag með veghefli en tókst aðeins að ryðja hluta vegarins. Snjóblásarinn verður sendur þangað þegar hann er búinn að hreinsa Hellisheiðina. Þrengslin voru hins vegar opnuð laust fyrir klukkan þrjú í dag.

Guðmundur Bergkvist, myndatökumaður á RÚV, slóst í för með björgunarsveitarmönnum í dag og fékk að fylgjast með störfum þeirra.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka