Vegir flughálir í bleytu

Hellisheiðin er enn lokuð en hún hefur verið það síðan klukkan sjö í morgun. Ólíklegt er að hún verði opnuð fyrr en undir morgun. Þrengslin eru opin. Þæfingsfærð er á Holtavörðuheiði.
Fróðárheiði er ófær. Á Vestfjörðum er vegur lokaður innan við Patreksfjörð vegna snjóflóðahættu og Kleifaheiði ófær. Ófært er milli Patreksfjarðar og Bíldudals og eins frá Vatnsfirði og austur yfir Klettsháls. Flughált er frá Ísafirði til Súðavíkur og inn all Djúp. Búast má við snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi utan Fljóta með hlýnandi veðri. Flughált er á Þverárfjalli og nokkuð víða í Skagafirði. Flughált er einnig á Öxnadalsheiði. Þæfingsfærð er á Hálsum. Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi en flughált er að heita má á öllu Suðausturlandi. Veður fer hlýnandi og það hlánar á láglendi um suðvestan og vestanvert landið í kvöld og nótt, einnig norðan og norðaustantil. Um leið og blotnar verða vegir víða flughálir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








