Vaxandi samstaða um kvótakerfið

Frá flokkstjórnarfundinum í morgun.
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra segir afar mikilvægt ár framundan þar sem muni ráðast hvort fyrsta vinstri stjórnin muni klára þau mikilvægu verkefni sem hún hefur byrjað á.
Þetta sagði Jóhanna við setningu flokksstjórnarfundar Samfylkingarinnar á hótel Nordicu í Reykjavík á ellefta tímanum í morgun.
Hún segir samstöðu milli stjórnarflokkanna um breytingar á kvótkerfinu fara vaxandi og nýtt frumvarp verði lagt fram í febrúar ef allt gengur eftir. Takist að ljúka öllum þeim brýnu verkefnin sem ríkisstjórnin hafi byrjað á sé engu að kvíða fyrir kosningar eftir rúmt ár og um leið að reisa íslenskt samfélag úr hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins.
Á annað hundrað manns sitja þennan flokksstjórnarfund sem að hluta til er framhald flokksstjórnarfundar sem haldinn var 30. desember síðastliðinn í sama húsi. Sá fundur var mikill hitafundur enda haldinn kvöldi áður en tilkynnt var um breytingar á ríkisstjórn. Tónninn er annar nú á þessum fundi og Jóhanna Sigurðardóttir sagði þótt verkefnin hafi vissulega verið erfið þá hafi Samfylkingin verið stefnuföst, lausnamiðuð og staðið saman.
Flokksstjórnarfundurinn heldur áfram í allan dag en yfirskrift hans er forgangsverkefni í atvinnu- og efnahagsmálum. Síðar í dag verður tekin afstaða til tillögu um að halda landsfund Samfylkingarinnar nú á vordögum. Síðasti landsfundur var haldinn í október.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







