Valur vann KR - Hamar lagði Fjölni

Valur vann KR í dag - Mynd: Eva Björk
Nítjánda umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik fór fram í dag.
Hamar vann Fjölni 81-76 í Grafarvogi. Brittney Jones skoraði 36 stig og tók 5 fráköst fyrir Fjölni en Samantha Murphy og Katherine Virginia Graham voru með 20 stig fyrir Hamarskonur auk þess sem Murphy tók 9 fráköst og Graham 6 fráköst.
Valur sigraði KR 86-57 á heimavelli sínum á hlíðarenda. Melissa Leichlitner var stigahæst Valskvenna með 21 stig og Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 17 stig og tók 6 frákös en Hafrún Hálfdánardóttir skoraði 14 stig fyrir KR og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með 13 stig og 8 fráköst.
Njarðvík lagði Snæfell 84-60 í Stykkishólmi. Kieraah Marlow skoraði 24 stig fyrir Snæfell og tók 7 fráköst en Petrúnella Skúladóttir var stigahæst í liði Njarðvíkur með 29 stig og Shanae Baker-Brice skoraði 27 stig og tók 13 fráköst.
Þá vann Keflavík lið Hauka 78-75 á heimavelli. Jaleesa Butler var með 24 stig og 10 fráköst fyrir Keflavíkurkonur en Hope Elam var atkvæðamest í liði Hauka með 24 stig og 12 fráköst.
Lið Keflavíkur er efst í deildinni með 32 stig og hefur fjögurra stiga forystu á Njarðvík sem er í öðru sæti með 28 stig. Haukar og KR hafa 22 stig, Snæfell 16 stig og Valur 14 stig, þá Fjölnir með 10 stig og Hamar er með 8 stig á botni deildarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







