Valur, Fylkir, FH og KR áfram

FH-konur unnu Selfoss örugglega í bikarnum í kvöld - Mynd: Eva Björk
Valur, Fylkir, FH og KR tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum bikakeppni kvenna í knattspyrnu en öll liðin unnu öruggan sigur á andstæðingum sínum í sextán liða úrslitum.
Bikarmeistarar Vals lögðu Hött 7-0 fyrir austan. Hildur Antonsdóttir skoraði tvö marka Vals og þær Dóra María Lárusdóttir, Elín Metta Jensen, Svava Rós Guðmundsdóttir, Rakel Logadóttir og Dagný Brynjarsdóttir skoruðu eitt mark hver.
Fylkir sigraði Hauka 12-0 í Árbæ. Rúna Sif Stefánsdóttir, Margrét Björg Ástvaldsdóttir, Anna Björg Björnsdóttir og Lovísa Sólveig Erlingsdóttir skoruðu tvö mörk hver og þær Eva Núra Abrahamsdóttir, Hanna María Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir og Rut Kristjánsdóttir skoruðu allar eitt mark.
FH gerði góða ferð á Selfoss og vann heimakonur 6-1. Bryndís Jóhannesdóttir skoraði þrjú mörk fyrir FH, Sigrún Ella Einarsdóttir tvö mörk og Guðrún Bentína Frímansdóttir eitt mark en Katrín Ýr Friðgeirsdóttir skoraði mark Selfoss.
Þá lagði KR lið HK/Víkings 5-1 í Vesturbænum. Katelyn Ruhe skoraði tvö mörk fyrir KR og þær Agnes Þóra Árnadóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir og Liz Carroll eitt mark hver.
Sextán liða úrslitum lýkur með þremur leikjum á morgun en þá tekur Keflavík á móti Þór/KA, Afturelding fær ÍA í heimsókn og Íslandsmeistarar Stjörnunnar mæta Fjölni í Garðabæ.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














