Valsarar safna liði

Nýjir leikmenn Vals í körfuboltanum.


  • Prenta
  • Senda frétt

Valsarar eru farnir að safna liði fyrir komandi átök í körfuboltanum næsta vetur. Valur hefur fengið til sín fjóra efnilega leikmenn til að spila með meistaraflokki kvenna í úrvalsdeildinni næsta vetur og tvo í karlaliðið sem leikur í 1. deildinni.

Allir leikmennirnir sex skrifuðu undir tveggja ára samninga við Val. Upplýsingar um leikmennina sex sem koma fram hér að neðan eru teknar beint úr fréttatilkynningu Vals.

Lilja Ósk Sigmarsdóttir 22 ára er fjölhæfur framherji frá Grindavík, spilaði einnig með U16 og U18 ára landsliðum Íslands. Lilja spilaði ekki síðasta tímabil sökum meiðsla á ökkla, sem hún fór í aðgerð á í sumar og gekk aðgerðin vel.

Sóllilja Bjarnadóttir 17 ára leikstjórnandi frá Breiðablik. Sóllilja er mjög dugleg og efnilegur leikmaður sem er í stúlknaflokki og mun æfa og keppa einnig með unglinga og meistaraflokki.

Sara Diljá Sigurðardóttir 17 ára er framherji sem kemur úr yngriflokkum Vals. Sara Diljá spilaði í Danmörku í fyrra þar sem hún var í körfuboltaakademiu. Sara er mjög áhugasöm og á framtíð fyrir sér í íþróttinni. Hún er leikmaður sem er í stúlknaflokki og mun æfa og keppa einnig með unglinga og meirstaraflokki.

Brynja Pálína Sigurgeirsdóttir 17 ára er bakvörður úr yngriflokkum Vals. Brynja Pálína spilaði með stúlkna og unglingaflokki í fyrra ásamt því að æfa með meistaraflokki félagsins.

Bjarni Geir Gunnarsson 17 ára bakvörður er að koma aftur frá Breiðablik eftir stutta fjarveru frá Val. Bjarni spilaði með yngriflokkum Vals í fyrra út janúar og æfði með meistaraflokki félagsins. 

Sigurður Skúli Sigurgeirsson 20 ára framherji. Var í meistara flokk félagsins í fyrra en er að skrifa undir samning í fyrsta skipt hjá Val.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku