Þú verður að vera í klíkunni!

Pétur Einarsson leikari í hlutverki sínu í leikritinu Undanþágunefndinni eftir Gunnar Gunnarsson. (Mynd: Dagur Gunnarsson)

Ertu í góðu sambandi við yfirvöldin? Hefurðu látið undir höfuð leggjast að efla tengsl þín við þá sem ráða? Ef svo er þarftu að bæta úr því hið fyrsta. Vantar þig bíl? Vantar þig dráttarvél? Vantar þig skóhlífar?

Allir eiga erindi við Undanþágunefndina en enginn kemst á hennar fund af eigin rammleik. Vertu í klíkunni!  

Þannig hljóða boðorðin sem nýtt leikrit Gunnars Gunnarssonar leikskálds fjallar um. Þetta nýja verk heitir Undanþágunefndin og verður frumflutt í Útvarpsleikhúsinu á sunnudaginn, 20. nóvember, kl. 14 á Rás 1.

Í meira en þrjátíu ár var innflutningsbann á Íslandi og gjaldeyrishöft. Nauðsynlegur innflutningur fór í gegnum Fjárhagsráð og þurfti að sækja um undanþágu frá reglum sem giltu um stórt og smátt. Höftunum var komið á á kreppuárunum 1930 og þau hert eftir seinni heimsstyrjöldina og ekki aflétt fyrr en á sjöunda áratugnum. Margir stjórnmálamenn litu svo á að Íslendingar gætu ekki verið sjálfstæð þjóð nema með því að girða landið af frá umheiminum með gjaldeyris- og innflutningshöftum.

Með hlutverkin fara Pétur Einarsson, Hannes Óli Ágústsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Birgitta Birgisdóttir og Hjálmar Hjálmarsson.

Leikstjóri er Erling Jóhannesson og hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson.

Tónlist í leikritinu er frumsamin af Finni Karlssyni, nema í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og er flutt af honum og tónlistarnemum við skólann, þeim Maríu Ösp Ómarsdóttir, Chrissie Telmu Guðmundsdóttur, Halldóri Sveinssyni, Úlfhildi Þorsteinsdóttur og Þórdísi Gerði Jónsdóttur.

Efst í fréttinni er viðtal við höfundinn, Gunnar Gunnarsson, um það samfélagsástand sem ríkti á Íslandi á þessum tímum og ríkir kannski að einhverju leyti enn. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku