Seltjarnarnes 51 - Skagafjörður 76

Á þrettándanum mætti lið Seltjarnarness liði Skagafjarðar

Á fyrsta föstudegi ársins 2012 komu systkinin frá Seltjarnarnesi í sjónvarpssal og kepptu við kvennalið Skagfirðinga. Síðarnefnda liðið fór betur af stað og náði ágætri forystu og hélt henni fram yfir orðaleikinn vinsæla. Eftir hann var staðan 38-49 og var því 11 stiga munur. Í flokkaspurningnunum hins vegar stóðu systkinin sig vel og náðu að jafna. Staðan fyrir stóru spurningarnar 51-51 og varð því að kasta pening til að skera úr um hvort liðið myndi fá fyrstu stóru spurninguna. Seltirningar fengu að ráða hvort liðið myndi byrja og ákváðu að ríða á vaðið. Ekki gekk þeim nógu vel í þessum síðasta hluta leiksins og töpuðu að lokum með 51 stigi gegn 76 stigum Skagfirðinga.

Þar sem EM í handbolta er að hefjast þann 15. janúar nk. mun útsendingartími Útsvars raskast aðeins næstu þrjú föstudagskvöld. Þá verður sýnt frá mótinu strax eftir kvöldfréttir og Útsvar sent út í kjölfarið. Næstkomandi föstudagskvöld, þegar Dalvíkurbyggð og Fljótsdalshérað mætast, mun útsending því ekki hefjast fyrr en kl. 21:05. Ekki missa af skemmtilegu föstudagskvöldi, hér á RÚV.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Útsvar, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku