Grindavíkurbær 110-Skagafjörður 57

Fyrsti þáttur í átta liða úrslitum fór fram föstudagskvöldið 3. febrúar þegar Grindavíkurbær og Skagafjörður mættust.
Keppnin fór jafnt af stað og vorum bæði lið komin til að skemmta sér og öðrum. Hæfilega var tekist á í bjölluspurningunum og var tiltölulega jafnt með liðum eftir þær. Lið Grindavíkurbæjar var fljótt að átta sig á réttum svörum í vísbendingaspurningunum og var því með 7 stiga forystu þegar farið var í leikinn. Þar léku þau á als oddi og náðu 27 stigum við að leika nöfn og hluti úr norrænni goðafræði. Liði Skagafjarðar gekk ekki eins vel og munaði 19 stigum þegar farið var í flokkaspurningarnar. Þar gekk liði Grindavíkurbæjar einnig betur og jókst munurinn enn. Að lokum unnu þau lið Skagafjarðar með 110 stigum gegn 57. Grindavíkurbær er því búinn að tryggja sér sæti í undanúrslitum sem fara fram í apríl.
Næstkomandi föstudagskvöld, 10. febrúar, kemur svo í ljós hvort það verður lið Fljótsdalshéraðs eða Hveragerðis sem fara með Grindavíkurbæ í undanúrslit. Ekki missa af Útsvari kl. 20:10.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







