Fljótsdalshérað 68 - Hveragerði 64

Föstudagskvöldið 10. febrúar mættust Fljótsdalshérað og Hveragerði.
Það var gríðarlega jöfn og spennandi viðureign í sjónvarpssal föstudagskvöldið 10. febrúar þegar Fljótsdalshérað og Hveragerði mættust. Síðarnefnda liðið fór örlítið betur af stað og var 5 stigum yfir þegar farið var í fyrsta auglýsingahléð. Eftir það tók leikurinn við, líkt og vanalega, og þar gekk liði Hveragerðis því miður ekki nógu vel að leika íslenska söngvara og söngkonur. Liði Fljótsdalshéraðs gekk hins vegar töluvert betur og náðu að sigla fram úr. Munaði því 7 stigum þegar farið var í flokkaspurningarnar og gekk báðum liðum ágætlega í þeim. Einungis fjögurra stiga munur var þegar komið var að stóru spurningunum og var endaspretturinn því virkilega jafn og spennandi. Fór þó að lokum að lið Fljótsdalshéraðs hafði betur og unnu með 68 stigum gegn 64 stigum Hveragerðis.
17. febrúar er komið að þriðja þætti átta liða úrslita Útsvars og er hann jafnframt sá síðasti fyrir pásu. Hana tökum við í þetta sinn til að hleypa Gettu betur að á föstudagskvöldum. Ekki missa af Reykjavík og Snæfellsbæ eigast við næstkomandi föstudagskvöld kl.20:10 eða strax á eftir Kastljósi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







