Dalvíkurbyggð 74-Fljótsdalshérað 80

Það var spennandi viðureign þegar Dalvíkurbyggð og Fljótsdalshérað mættust í Útsvari föstudagskvöldið 13. janúar 2012.

Útsvar fór í loftið um klukkustund seinna en vanalega föstudagskvöldið 13. janúar sökum landsleiks í handbolta sem sýndur var eftir fréttir. Fólk var glatt og í stuði eftir stóran sigur Íslands á Finnum í Laugardagshöll og því góð stemning hjá gestum og keppendum kvöldsins þegar Útsvar fór í loftið. Nokkrir félagsmenn úr klúbbnum Þorsteini voru meðal gesta og var virkilega gaman að sjá og heyra aðeins í þeim. Þau skírðu klúbb sinn í höfuðið á Þorsteini Bergssyni einum liðsmanna Fljótsdalshéraðs og var hann virkilega kátur með það ásamt öðrum liðsmönnum, gestum og starfsfólki þáttarins.

Bæði lið mættu galvösk til leiks og tókust á frá fyrstu mínútu. Töluverðar sviptingar voru og skiptust liðin á að vera yfir. Spennan hélst því fram á síðasta hluta þáttarins en að lokum var það Fljótsdalshérað sem vann Dalvíkurbyggð með 80 stigum gegn 74. Þau mæta því í þriðju umferð sem hefst 3. febrúar næstkomandi og stendur til 4. apríl.

Næstkomandi föstudagskvöld verður einnig seinkun á útsendingu Útsvars því þá munu Króatía og Noregur keppa í EM í handbolta og hefst Útsvar að þeim leik loknum. Áætlað er að útsending hefjist um kl.20:55 og eru það lið Álftaness og Garðabæjar sem eigast við. Það er því sannur grannaslagur sem vert er að horfa á föstudagskvöldið 20. janúar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Útsvar, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku