Árborg 60 - Grindavíkurbær 108

Árborg og Grindavíkurbær áttust við í sjónvarpssal Rúv föstudagskvöldið 16. desember.

Það var gríðarlega snerpa í hlaupara Grindavíkurbæjar þegar hann, ásamt sínum liðsmönnum, mætti liði Árborgar. Þau tóku strax forystuna og héldu henni alveg til enda og náði þátturinn því aldrei að verða spennandi. En liðsmenn Árborgar létu það þó ekki á sig fá og voru hress og skemmtileg þar til yfir lauk. Lokatölur kvöldsins voru 108 stig Grindavíkurbæjar á móti 60 stigum Árborgar.

Fyrsta föstudagskvöld janúarmánaðar, nánar tiltekið þann 6., mætast hins vegar systkinin af Seltjarnarnesi og stelpurnar frá  Skagafirði. Skagafjörður var eitt af stigahæstu tapliðum fyrstu umferðar og mæta eflaust af fullum krafti og sýna hvað í þeim býr. Seltirningar eru í fyrsta sinn komnir áfram í aðra umferð og taka því sjálfsagt vel á móti. Ekki missa af skemmtilegum Útsvars þætti þann 6. janúar klukkan 20.10 eða strax á eftir Kastljósi.

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, þökkum við ykkur fyrir að horfa á árinu sem er að líða. Sjáumst hress á nýju ári.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Útsvar, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku