Álftanes 56 - Garðabær 82

Það var hörku slagur á milli nágrannanna frá Álftanesi og Garðabæ föstudagskvöldið 20. janúar.

Lið Álftaness og Garðabæjar voru ekki að mætast í fyrsta sinn í Útsvari þegar þau mættu í sjónvarpssal föstudagskvöldið 20. janúar. Bæði lið hafa sigrað og slegið út hitt í fyrri viðureignum og var því mikil spenna um hvort myndi bera sigur úr býtum. Keppnin byrjaði jöfn í bjölluspurningunum og þegar kom að fyrsta hléi þáttarins munaði ekki nema 3 stigum. Garðabær var yfir og byrjaði því að leika. Götuheiti í Reykjavík var þema kvöldsins og gekk báðum liðum ágætlega. Álftanes náði einu orði fleira réttu og var því staðan hnífjöfn þegar kom að flokkaspurningunum. Kastað var pening og Garðabær hóf leika. Flokkaspurningarnar voru frekar þungar þetta kvöldið en Álftnesingar stóðu sig betur og voru 10 stigum yfir þegar kom að stóru spurningunum. Þar náðu Garðbæingar góðum spretti og unnu að lokum með 82 stigum gegn 56. Var því um mjög spennandi og sveiflukennda keppni að ræða en við sjáum Garðbæinga aftur í 8 liða úrslitum sem hefjast 3. febrúar.

Vegna Gettu betur verður gert hlé á Útsvari þetta árið og verða því einungis þrjár viðureignir í febrúar en síðasta viðureignin verður send út miðvikudaginn fyrir páska eða þann 4. apríl.

Næsta föstudagskvöld ljúkum við hins vegar annarri umferð þegar Akureyri og Reykjavík keppa. Ekki missa af, án efa, æsispenndi keppni eftir landsleik á EM eða um kl.21:10.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Útsvar, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku