Útisvið hrundi í Toronto

Flokkar: Erlent
Mynd: Shutterstock.


  • Prenta
  • Senda frétt

Einn lét lífið og þrír slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar útisvið hrundi í kvöld í Toronto í Kanada. Enska hljómsveitin Radiohead átti að koma þar fram. Slysið varð um það bil klukkustund áður en til stóð að hleypa áheyrendum inn á tónleikasvæðið. Tónleikunum var umsvifalaust aflýst.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku