Útbreiðsla dagblaða dregst saman

Útbreiðsla dagblaða dróst saman um 8 þúsund eintök á síðasta ári, úr 138 þúsund árið 2009 í 130 þúsund í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Frá árinu 2007 hefur útbreiðsla dagblaða skroppið saman um 153 þúsund eintök, eða um ríflega helming, eftir að hafa aukist stöðugt allt frá árinu 2001 með tilkomu frídagblaða. Dagblöðin hafa ekki verið færri síðan á öðrum áratug síðustu aldar. Útbreiðsla vikublaða jókst hins vegar stórlega á síðasta ári. Samanlögð útbreiðsla vikublaða í fyrra var 231 þúsund eintök að jafnaði, sem er meira en þreföldun frá 2009. Ástæðu þessa má rekja til fjölgunar vikublaða sem dreift er á landsvísu og tilkomu tveggja fríblaða sem dreift er í stóru upplagi. Frá 2008 hefur dagblöðum fækkað úr fimm í tvö.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







