Sófaferðalangur gerðist göngugarpur eftir kransæðastíflu

Bjarki Sveinbjörnsson á Hvannadalshnjúk
Hann fékk alvarlega kransæðastíflu og gekk síðan frá Reykjanesi á Font. Fyrst gekk hann frá Grindavík út á Reykjanes og síðan einn áfanga af öðrum alla leið á Font. Í millitíðinni skrapp hann á Hvannadalshnjúk.
Í þættinum er líka fjallað um kava, Konungsveginn og veðurspár.
Kava, hvað er kava? Spurði ég þegar ég kom inn í eitt slíkt kaffihús á Hawaii. Að sögn eigandans er neysla á kava ein af ástæðum þess að Havai búar eru svo elskulegir og iðka svokallaðan alohaanda, það er taka öllum af virðingu og ástúð og hann bætir við: það hefur verið reynt að banna kava en það væri eins hægt að banna kamillute.
Við gluggum líka í nýútkomna bók um Þingvelli. Þar er meðal annars sagt frá Konungsveginum sem lagður var fyrir konungskomuna 1907. Þetta var dýrasta framkvæmd sem ráðist hafði verið í frá upphafi byggðar. Þegar konungurinn kom vildi hann frekar ríða með bændunum en aka í vagni eftir þessum dýra vegi.
Að lokum er rætt við Þór Jakobsson um veðrið sem er okkur hugstætt eftir lætin sem hafa verið undanfarna daga. Veðurfræðingar sem eru alltaf að reyna að spá lengra og lengra fram í tímann hafa þó ekki enn fundið skýringu á kyrrstæðum hæðum yfir Atlantshafi.
Við byrjum á spurningu dagsins og spyrjum um Lagarfljót og stöðuvatnið Löginn . Hversu langt er Lagarfljót frá efstu upptökum og hvar eru þau? Hvað er Lögurinn langur og djúpur og hvert er flatarmál hans? Hvaða sögur fara af vatninu og hvaða náttúrulegar skýringar telja menn sig hafa á tilurð sagnanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







