Ræktar jólagrænmetið í garðinum sínum

Grænmeti
Hugmyndina að því að rækta grænmeti í garðinum sínum allt árið fékk hann frá garðyrkjumanni í Maine í Bandarríkjunum. Enn sem komið er hefur tilraunin gengið vel. Hlustið á þáttinn í kvöld 7.des.kl 21.10 til að heyra meira.
í þættinum fræðumst við líka um íslensk jólatré,umferðareyjar og Þingvelli 15 skógræktarfélög á landinu bjóða fólki að koma í skógarreitina og höggva eigin tré. Þetta er orðinn ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra fjölskyldna sem njóta þess að halda út í náttúruna og eiga þar góða stund saman, fjarri öllu stressi. Þegar rétta tréð er fundið gæða menn sér gjarnan á piparkökum og heitu súkkulaði og stundum bregða jólasveinar á leik í skóginum. Við heyrum af því og hugum síðan að annars konar ræktun.
Í sumar skapaðist umræða um að opinber svæði voru ekki slegin jafn oft og fólk á að venjast. En hvers vegna þarf að eyða vinnu og peningum í stöðugan slátt? Er ekki hægt að velja gróður á umferðareyjar og fleiri opin svæði sem er fallegur án viðhalds svo sem lávaxinn gróður, smára og villtan íslenskan gróður?
„Þingvellir geyma sögu þjóðarinnar, mestu sigra hennar, dýpstu niðurlæginguna, stærstu gleðistundirnar. Þangað leita skáld til að yrkja og mála og vísindamenn til að sannreyna furður veraldar. Þetta má lesa í inngangi bókarinnar Þingvellir. Þjóðgarður og heimsminjar. Við skoðum bókina.
En fyrst er það þó spurning dagsins Við spyrjum um Reykholt í Borgarfirði. Hvaða sögufræga persóna bjó þar og hvenær? Fyrir hvað er þessi persóna þekktust og hvar, hvenær og hvernig lét hún lífið? Viðkomandi átti tvo albræður sem settu svip á söguna. Hverjir voru þeir og hver urðu endalok þeirra?
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







