Leitin að norðurljósunum!

Norðurljós og rútur

Ekið er vítt og breitt til að kanna hvort einhver glufa sé í skýjahulunni. Með í för eru áhugasamir ferðamenn sem hafa komið langa leið til að líta norðurljósin augum. Því miður hafa ekki allir heppnina með sér,við sjáum hvað setur í þessari ferð. Að þessum leiðangri loknum liggur leiðin til Dubai.

Hingað koma fjölmargir ferðmenn á veturna til að sjá norðurljósin en líka til að upplifa myrkrið, jólin og áramótin, og þeim fjölgar jafnt og þétt milli ára. Á gamlársdag var rætt við leiðsögumann sem hefur mikla reynslu af norðurljósaferðum og það var komið við á Umferðarmiðstöðinni til að fylgjast með um 500 manns leggja af stað í leit að norðurljósunum. Nú fáum við fáum far með einni af rútunum níu sem eru að leggja upp í leiðangur, heyrum í nokkrum farþeganna og fylgjumst með hvernig leitin að norðurljósunum gengur.

Að þessari ferð lokinni liggur leiðin til Dubai. Flestir hafa heyrt og séð myndir af ævintýralegum byggingum sem þar hafa risið á síðustu árum. En það er fleira að sjá í borginni en nútímalegar byggingar. Þar eru gömul hverfi og skemmtilegir frumstæðir markaðir. Þar hafa líka verið hönnuð hverfi þar sem líkt er eftir náttúrunni eins og hægt er. Á stuttum tíma er hægt að ferðast á milli gjörólíkra heima.

En við byrjum á spurningu dagsins og spyrjum um fjögur klaustur, þar af eitt nunnuklaustur, sem voru á landinu á miðöldum. Spurningin er: Hvar voru þau og hvenær voru þau stofnuð?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku