Íslenskur æðadúnn, 80-90% heimsmarkaðshlutdeild

Æðardúnn

Markaðshlutdeild íslensks æðardúns er um 80-90% af heimsmarkaði enda er um mjög sjaldgæfa og verðmæta afurð að ræða. Æðardúnssængur eru miklu ódýrari hér en erlendis. Til dæmis borgar sig fyrir Japani að koma alla leið til Íslands til að kaupa sæng.

í þættinum laugardaginn 17.desember er einnig fjallað um verndun,jarðminja,silfursjóði og Giljagaur

 Jarðminjar sem vert er að vernda eru margar hér á landi. Sumar eru mikilvægar á alþjóðlega vísu eða fágætt dæmi um jarðfræðilega myndun. Aðrar hafa menningargildi, t.d. vegna trúar eða sögu,umhverfisbreytinga og loftslagssögu eða vegna þróunar lífsins. Við heyrum af verndun jarðminja.

Jarðminjar sem vert er að vernda eru margar hér á landi. Sumar eru mikilvægar á alþjóðlega vísu eða fágætt dæmi um jarðfræðilega myndun. Aðrar hafa menningargildi, t.d. vegna trúar eða sögu,umhverfisbreytinga og loftslagssögu eða vegna þróunar lífsins. Við heyrum af verndun jarðminja.

Sumarið 1930 þegar kirkjugarðinn við Gaulverjabæ á Suðurlandi var færður fannst hrúga af silfurpeningum frá víkingaöld, samtals 360 stykki. Hvort sá eða sú sem gróf fjársjóðinn í jörð í Gaulverjabæ hefur grætt fé af ránskap og hernaði er ekki vitað en við skoðum sjóðinn.

Þegar þátturinn var á ferðinni í Þjóðminjasafninu var Giljagaur þar að ræða við grunnskóla- og leikskólabörn sem komu til að hitta hann. Við leggjum við hlustirnar þegar jólasveinninn talar um rjómafroðu, frosna mjólk og fleira.

þátturinn hefst að vanda á spurningu dagsins sem tengd er jólum og jólasveinum. Allir vita hve margir íslenskir jólasveinar koma af fjöllum í desember og gefa börnum í skóinn enda eru þeir á fullu þessa dagana. Hvað heita þeir í réttri röð og hver eru áhugamál þeirra? Það eru til heimildir um mun fleiri jólasveina en 13, hversu margir hafa verið nefndir?

Hvenær varð rauðklæddi jólasveinnin fyrst frægur vestan hafs? Nefnið þekkt kvæði sem þá var samið og er enn lesið á jólunum víða í Bandaríkjunum?

Rauðklæddi jólasveinninn er reyndar kominn mun lengra að, nefnið dýrlinginn sem umbreyttist í jólasveininn? Hvar er hann fæddur og hvenær?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku