Íslenskir steinar til sýnis

í Skaftafelli
Í þættinum Út um græna grundu í fyrramálið klukkan 09.03 er talað við landvörð í Skaftafelli, Ólafi Pá fylgt til Mýrkjartans afa síns á Írlandi, rætt við bónda í Borgarfiði og fræðst um íslenska steina sem eru til sýnis í Tryggvagötunni í Reykjavík.
Við byrjum þáttinn í Skaftafelli. Þjóðgarðurinn þar var stofnaður árið 1967 en hringvegurinn var ekki opnaður fyrr en 1974. Skaftafell er nú hluti af Vatnajökulsþjóðgarði og þar má finna einhverjar mestu náttúruperlur Íslands. Svartifoss er þar væntanlega efst á blaði. Við heyrum í landverði sem hefur starfað á staðnum í 10 ár.
Við höldum síðan vestur í Dalasýslu aðal sögusvið Laxdælu. Höskuldur Dalakollsson átti son með ambáttinni Melkorku sem reyndist vera írsk prinsessa. Höskuldi fannst mikið til um son sinn Ólaf sem fékk viðurnefnið Pá þar sem hann þótti berast mjög á í klæðaburði. Við fylgjum Ólafi til Írlands í heimsókn til konungsins afa síns.
Það hefur margt breyst í Borgarfirði á 20 árum, sauðfjár og kúabændumhefur fækkað en í staðinn hefur komið fólk sem sumt starfar utan sveitarinnar en er jafnframt öflugir skógarbændur eða hestamenn. Enn eru þó ungir öflugir bændur á svæðinu sem nytja landið með hefbundnum hætti segir bóndi í dalnum.
í Reykjavík er alltaf hægt að uppgötva eitthvað nýtt og spennandi fyrir ferðamenn bæði íslenska og erlenda. Í Tryggvagötu í „Volcanohouse" má til dæmis skoða safn glæsilegra íslenskra steina. Hingað til hefur verið erfitt að finna slíkan stað í Reykjavík en í Kópavogi í Náttúrustofu Kópavogs er gott steinasafn.
Við byrjum að vanda á spurningu dagsins, höldum út á Snæfellsnes og spyrjum um Snæfellsjökul: Hversu hár er hann og hvert er flatarmál jökulskjaldarins? Hvenær gaus síðast í Snæfellsjökli? Hversu djúpur er gýgurinn og hvað er hæsti hluti jökulsins kallaður? Snæfellsjökull er sögusvið tveggja þekktra skáldsagna, hverjar eru þær og erftir hverja eru þær? Báðar hafa komið sem kvikmyndir önnur oftar en einu sinni nefnið leikstjóra og leikara í nýjustu útgáfu hennar og einn leikara of leikstjóra í hinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







