Hvað veldur norðurljósum?

Norðurljós og stjarna

Hingað koma fjölmargir erlendir gestir til að líta norðurljós augum. Sérstalega margir koma frá Japan en þar í landi er því trúað að það sé gæfumerki að geta barn undir norðurljósum. Við heyrum í leiðsögumanni sem hefur farið í fjölmargar norðurljósaferðir.

 í þættinum verður einnig fjallað um áramót, álfasögur, flugelda og Hawaii. Rétt fyrir jólin kom út mjög áhugaverður diskur sem heitir Áramóta- og þrettándagleði. Á honum eru ekki aðeins nokkur helstu áramóta og þrettandalög og -ljóð okkar heldur einnig frásagnir af áramótum og lesnar þjóðsögur um álfa og huldufólk. Við njótum góðs af þessu framtaki  hér í þættinum og heyrum Árna Björnsson fjalla um áramót sem hafa ekki alltaf verið á sama tíma heldur breytileg eftir tímabilum, heimsálfum, löndum og jafnvel héröðum.

Við heyrum líka  álfasögur, sem finna má á diskinum, en eins og flestir vita er eins gott að tala ekki við álfana sem hafa í ýmsu að snúast á nýársnótt. 

Langmest af flugeldum Slysavarnafélagsins Landsbjargar kemur frá þekktum flugeldaframleiðanda í Hunan héraði í Kína . Við fræðumst um flugeldana sem við skjótum upp í kvöld og ferðalag þeirra til landsins.

Þá heyrum við í leiðsögumanni sem fer með erlenda gesti í norðurljósaferðir. Oftar en ekki sjást ljósin ekki og þá ríður á að hafa ýmislegt fróðlegt að segja. Við fáum líka smá innsýn í hvernig svona ferð gengur fyrir sig og lítum inn hjá Kynnisferðum þegar um 500 manns eru á leið í norðurljósaferð

Við endum þáttinn með henni Evu lani á Hawaii.  Hún vinnur þar á farfuglaheimili og nýtur þess að fræða fólk allstaðar að um eyjuna sína. Meðal annars eldfjallaþjóðgarðinn sem er sá mest heimsótti í heimi og fjallið Mauna Kea.

En þá að spurningu dagsins. Í vikunni var fjallað um mengandi efni í brennum og flugeldum. Hvaða hættulegu efni myndast í brennunum?  Hversu mikið hlutfall af myndun þess hér á landi er talið koma frá brennunum og hvað hyggjast menn gera til að kanna hvort svo sé?

Hvaða efni er það sem varað hefur verið í flugeldum til hvers er það sett í flugeldana?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku