Flakkarar í frosthörkum í Laugardal.

Steinunn Harðardóttir og Sólon Breki

Við förum með hópi leikskólabarna sem kalla sig Flakkara inn í Laugardal. Þar hengja þau fuglafræ í tré sem þau hafa eignað sér, fá sér kakó, leika sér, syngja og spjalla saman.

Það var mikið frost í gönguferðinni í Flakkaraferðinni og sumum varð um og ó þegar einn festi tunguna við járn. Hann var þó fljótur að ná sér og taka þátt í ærslum og leikjum hinna barnanna.

Í þættinum verður einnig fjallað um Hávamál og eldfjöll en þátturinn er að þessu sinni helgaður börnum og samveru fjölskyldunnar.

Við fræðumst  um myndskreytingu og hugmyndafræði bókarinnar Hávamál  sem er nýkomin út. Í henni enduryrkir Þórarinn Eldjárn spakmæli Óðins þannig að  þau verða mjög aðgengileg öllum, bæði börnum og fullorðnum. Myndirnar eru mjög líflegar og koma ímyndunaraflinu af stað. Við skoðum þær með höfundi þeirra Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur.

Spurning dagsins er að þessu sinni tengd bókinni Af hverju gjósa eldfjöll?  Í  henni eru spurningar og svör um eldgos af Vísindavefnum.  Við spyrjum: Hvað er eldgos, hvað er heitur reitur og hvar er mest um eldgos á jörðinni?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku