Eiga þeir sem fæðast í desember enga stjörnuspá?

Stjörnumerkið Naðurvaldi

Árið 2011-2012 gengur sólin ekki í gegnum 12 stjörnumerki heldur 13. Þrettánda merkið kallast Naðurvaldi en naður er gamalt orð fyrir slöngu.Einnig fjallað um ræktun mosa,Geirþjófsfjörð og fæðuskort unganna á Tjörninni.

Dagana 30. nóvember til 16. desember verður sólin í Naðurvalda, þrettánda stjörnumerkinu. Naðurvaldi heldur á stjörnumerki sem heitir höggormurinn. Það er ekki til nein stjörnuspá fyrir þá sem eru fæddir í Naðurvalda.

Mosar eru ríkjandi í íslenskum vistkerfum enda um sexhundruð tegundir á landinu. Mosi er viðkvæmur fyrir ágangi og sár sem myndast í mosaþekjuna  geta verið lengi að gróa. Við heyrum af tilraunum til að fjölga nokkrum algengum íslenskum mosategundum bæði í gróðurhúsi og á víðavangi.

Á Mid-Atlantic kaupstefnuna  sem haldin var um síðustu helgi kom fólk alls staðar að af landinu til að kynna sitt landvæði og þá þjónustu sem þar er í boði fyrir ferðamenn. Á Bíldudal er hægt að fara í ýmis konar siglingar meðal annars inn í Geirþjófsfjörð þar sem Auður kona Gísla Súrssonar bjó og hann var veginn.

Á Reykjavíkurtjörn hefur öndunum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin ár. Ástæður eru meðal annars skerðing búsvæða, afrán og fæðuskortur sem virðist vera mikilvægasti þátturinn. Andarungar lifa ekki á brauðinu einu saman. Þeir þurfa dýraprótein í upvextinum. Áður var mikið af mýlirfum og öðrum smádýrum í Tjörninni en þau eru nú horfin. En þá er það spurning dagsins.

Við spyrjum um Mývatn: Hversu stórt er vatnið og margar eyjar og hólmar eru í vatninu? Vatnið er þekkt fyrir fjölbreytt dýralíf, hve margar andategundir verpa á eða  í nágrenni við vatnið? Hvaða sérstæða lífvera er á botni vatnsins og hvaða efni hefur verið dælt úr vatninu og það nýtt þar til nýlega?

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku