Át Kertasníkir jólakertin?

Árbær í snjó
Jólasveinarnir voru jú flestir að leita að mat. Eins og vera ber er þátturinn Út um græna grundu í jólaskapi á aðfangadag,við heimsækjum Árbæ skoðum kirkjuna hugum að fuglunum og förum til Havaii.
Kirkjan í Árbæ á sér sérstæða sögu. Hún var reist að Silfrastöðum í Skagafirði um miðja 19. öld, var síðan afhelguð og nýtt sem baðstofa og að lokum flutt á Árbæjarsafn þar sem hún hefur verið í um 50 ár.
Gengið er í bæinn til að skoða hlóðaeldhúsið og hlusta á jólasögu sem gjarnan er sögð börnum sem heimsækja safnið. En fyrst er vert að huga að smáfuglunum og hentugu góðgæti fyrir þá núna um hátíðarnar.
Að lokum liggur leiðin til Havaii en þar ríkir jólaandinn árið um kring. Við heyrum í Evu lani frá stóru eyjunni Hawaii. Hún óst upp í nágrenni við eldfjöllin Mauna Kea og Kileau og hefur tvisvar horft á hraunið renna örfáa kílómetra frá heimili sínu. Hún segir frá uppvexti sínum og foreldrum af mikilli virðingu, ást og væntumþykju.
Við byrjum að vanda á spurningu dagsins og spyrjum um bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Hvað heitir aðalpersóna sögunnar? Með honum eru tvö dýr, hvaða dýr eru það og hvað heita þau? Bókin byggir á sannsögulegum atburðum, hvað hét fyrirmyndin og hvenær gerðust þeir atburðir sem sagan byggir á? Hvað hét sagan í upphaflegri mynd? Hvenær var Aðventa fyrst gefin út og hvar?
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







