456 þúsund afkomendur

Í þættinum Út um græna grundu á laugardag verður fjallað um almannarétt í náttúruverndarlögum, kvonfang Ólafs Pás og flutning hans að Goddastöðum, staldrað við á Lindarhvoli í Þverárhlíð í Borgarfiði og fræðast um minningartöflu um Magnús prúða í Þjóðminjasafninu, en hann á um 456 þúsund afkomendur

Í lögum um náttúruvernd eru ákvæði um almannarétt, umgengni og útivist. Samkvæmt þeim er öllum heimilt að fara um landið og njóta náttúru þess svo fremi að gengið sé vel um og engu spillt. Það má fara um óræktuð eignarlönd án sérstaks leyfis en heimilt er að  takmarka ferðir um slík lönd með girðingum og sérstökum merkingum. Við fræðumst um almannarétt.

Í Laxdælu má lesa frásögn af brúðkaupi Ólafs Höskuldssonar og Þorgerðar Egilsdóttur og flutningi þeirra frá Höskuldsstöðum að Goddastöðum. Samkvæmt sögunni var  engin auðugri að fé í Breiðafirði en Ólafur og þegar Jórunn kona Höskuldar föður hans sá safnið varð henni að orði „Hefur ambáttarsonurinn þann auð til þess að uppi sé hans nafn“. Við gluggum í Laxdælu.

Við höldum upp í Borgarfjörð og lítum yfir Þverárhlíðina frá Sönghamri sem er við bæinn Lindarhvol. Ábúandi staðarins dvaldi þar á sumrin sem barn og þá í torfbæ. Móðir hans birkupsdóttirin heillaðist af staðnum og hóf þar búskap ásamt manni sínum. Henni fannst staðurinn svo miðsvæðis

Á Þjóðminjasafni Íslands er gripur nóvembermánaðar minningartafla um Magnús Jónsson prúða, síðari eiginkonu hans Ragnheiði Eggertsdóttur og börn þeirra 12. Taflan er talin sýna elstu mynd af Íslendingi sem varðveist hefur. Afkomendurnir urðu flestir embættismenn og frammámenn í landinu í sinni tíð. Þeir áttu fjölda barna  og geta fjölmargir Íslendingar rakið ættir sínar til þeirra.

Við byrjum að vanda á spurningu dagsins  og spyrjum um þrjá stæstu hraunhella landsins,hvað heita þeir og í hvaða hrauni eru þeir?  Hvenær myndaðist hraunið , og hvar landinu er á það?

Okkar á milli, laugardaginn 19. nóvemer kl. 9:05, á Rás 1.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku