Úrslitin ráðast í bikarnum í dag

KR-ingar eiga titil að verja - Mynd: www.kr.is


  • Prenta
  • Senda frétt

Stjarnan og KR mætast í úrslitaleik bikarkeppni karla í knattspyrnu klukkan 16.00 á Laugardalsvelli í dag. KR-ingar eiga titil að verja en Stjörnumenn hafa aldrei áður leikið til úrslita í bikarkeppni karla.

Þetta er þriðja árið í röð sem KR kemst í úrslitaleikinn í keppninni en liðið vann 2-0 sigur á Þór Akureyri í fyrra en tapaði illa fyrir FH 4-0 árið 2010. KR-ingar hafa alls 17 sinnum leikið til úrslita í bikarkeppninni og 12 sinnum staðið uppi sem sigurvegarar.

Stjarnan og KR hafa mæst tvívegis í deildinni í sumar og hafa báðir leikir endað með jafntefli, 2-2 í Vesturbæ í fyrir umferðinni og 1-1 í Garðabæ í þeirri síðari.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku