Lokatónleikar Myrkra músíkdaga

Upptaka frá lokatónleikum Myrkra músíkdaga, þar sem Kammersveit Reykjavíkur flutti fjögur ný verk eftir fjögur tónskáld, undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar. Verkin eru eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Karólínu Eiríksdóttur, Hauk Tómasson og Hafliða Hallgrímsson.
Hér gefur að heyra fjögur glæsileg ný verk eftir jafnmörg tónskáld. Fyrsta verkið er Laur eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem hann tengir við búddisma, þekkingarleit og galdadulmál. Síðan er glænýr óbókonsert eftir Karólínu Eiríksdóttur, þar sem Matthías Birgir Nardeau er í einleikshlutverkinu. Hann er þrítugur, en hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í nokkur ár og hefur komið víða fram sem einleikari - hann útskrifaðist með premier prix frá Tónlistarháskóla Parísarborgar árið 2005. Þriðja verkið er Cantena eftir Hauk Tómasson, en hann sækir efnivið verksins til annars verks sjálfs sín, Sería, sem hann samdi fyrir Kammersveitina árið 2004 - segja má að þetta séu „Tilbrigði við stef sem aldrei heyrist“. Lokaverk tónleikanna er Sonnambulo, fyrir kontrabassa og kammersveit sem var frumflutt árið 2009 af Skosku kammersveitinni og kontrabassaleikaranum Nicholas Bayley, í Glasgow. Á tónleikum Myrkra músíkdaga var það hins vegar rússneski kontrabassaleikarinn Nikita Naumov sem var í því hlutverki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







