Uppbygging leysi átök af hólmi

Frá Austurvelli í dag.


  • Prenta
  • Senda frétt

Ólafur Ragnar Grímsson var settur í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Hann er fyrsti forsetinn í sögu lýðveldisins sem hefur fimmta kjörtímabilið sem forseti.

Eftir að Ólafur hafði undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni í Alþingishúsinu og tekið við kjörbréfi gengu forsetahjónin út á svalir Alþingishússins og minntust fósturjarðarinnar. Nokkur fjöldi fólks var samankominn á Austurvelli í blíðskaparveðri og minntist fósturjarðarinnar með forseta sínum.

Fjöldi gesta var viðstaddur innsetningarathöfnina, þar á meðal ríkisstjórn, þingmenn, æðstu embættismenn þjóðarinnar, sendiherrar erlendra ríkja og fyrrverandi handhafar forsetavalds.

Í ræðu sinni sagðist forsetinn taka á ný við þeirri ábyrgð sem þjóðin hafi falið honum, með auðmýkt og þakklátum huga. Hann lofaði nýliðnar kosningar og stjórnarskrána. Kosningarnar hefðu verið gleðilegur vitnisburður um lýðræðisþróun. Stjórnarskráin hafi veitt fólkinu í landinu fimm sinnum vald til að kveða upp sinn dóm í kjölfar bankahrunsins.

Hann sagði ráðamenn þjóðarinnar verða að taka upp nýja siði: „Allir sem kjörnir eru til ábyrgðar eiga að taka höndum saman, láta uppbyggingu leysa átök af hólmi. Þjóðin biður um slík þáttaskil; það er lærdómur samræðnanna sem fram fóru í aðdraganda kosninganna; í byggðarlögum, á vinnustöðum og heimilum.

Þjóðin vill geta treyst Alþingi og öðrum stofnunum lýðveldisins. Samstaða um hin stærstu mál í stað sífellds ágreinings er vísasti vegurinn til að endurvekja traustið sem löggjafanum er nauðsynlegt.

Þjóðin veit að líkt og samhugur er forsenda farsæls fjölskyldulífs eru takmörk fyrir því hve lengi samfélag þolir þá upplausn sem stöðug átök hafa í för með sér.

Því heiti ég á þessari stundu á okkur öll, sem sækjum umboð til þjóðarinnar, heiti á Alþingi og sveitarstjórnir, alla sem kjörnir eru til ábyrgðar, að við tökum upp nýja siði, látum átökin víkja og röðum verkefnum á þann veg að breiður stuðningur verði að baki ákvörðunum.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku