Ungverjar verða mótherjar Íslands
Fyrst birt: 06.08.2012 12:25, Síðast uppfært: 06.08.2012 12:26

Ungverjar verða mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum í handbolta karla á Ólympíuleikunum. Ungverjar lögðu Serba að velli í morgun 26-23 og tryggðu sér þar með fjórða sæti B-riðils. Íslendingar mæta Bretum í síðasta leik sínum í riðlakeppninni í dag.
Leikur Íslands og Bretlands hefst klukkan 15:15 og verður sýndur beint á RÚV. Íslendingar hafa tryggt sér sigur í A-riðli sama hvernig leikurinn fer. Leikur Íslands og Ungverjalands í 8 liða úrslitunum fer fram á miðvikudag.
Rétt fyrir hádegi lauk leik Argentínu og Túnis í A-riðli og þar höfðu Túnisbúar betur, 25-23. Þar með tryggðu þeir sér 4. sæti riðilsins og sæti í 8-liða úrslitum keppninnar.
Hér má sjá stöðuna í riðlunum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












