Ummæli kennara ógeðfelld

Brekkuskóli. Mynd af www.brekkuskoli.is
Akureyrarbær hefur ummæli grunnskólakennara í bænum til skoðunar. Kennarinn sagði á bloggsíðu sinni að samkynhneigð væri synd. Foreldrar nemenda við skólann segja ummælin ógeðfelld og ekki sæmandi barnakennara.
Kennarinn, Snorri Óskarsson, oftast kenndur við trúarsöfnuðinn Betel, kennir unglingum í Brekkuskóla á Akureyri. Að sögn Gunnars Gíslasonar fræðslustjóra Akureyrarbæjar eru ummælin til skoðunar og málið í lögformlegu ferli hjá bænum.
Gunnar staðfestir jafnframt að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem skrif Snorra veki viðbrögð og komi inn á borð skóladeildarinnar. Að öðru leyti vildi Gunnar ekki tjá sig um málið.
Logi Már Einarsson situr í skólanefnd Akureyrarbæjar og er faðir barna í Brekkuskóla. Hann tjáir sig hvorki um hvern né hvað er fjallað á skólanefndarfundum.
„ Ég er nú að tjá mig fyrst og fremst bara sem foreldri og bara sem borgari þessa lands og bæjar. Menn hafa verið að spyrja mig um hans skrif og hvað foreldrum finnst um þau. Ég verð að segja að mér finnst þau ógeðfelld og ekki sæmandi barnakennara. Þau fara náttúrulega á svig við almenn hegningarlög að mínu áliti. Flestir foreldrar sem hafa haft samband við mig hafa tjáð sig á sama hátt, það kunna að vera aðrir sem hafa aðrar skoðanir en ég hef ekki heyrt í þeim.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







