Umferðin gengur vel á Menningarnótt

Gríðarleg þátttaka var í Latabæjarhlaupinu í dag. Mynd: Einar Þorsteinsson


  • Prenta
  • Senda frétt

Um 40 til 50 þúsund manns var í miðborg Reykjavíkur um miðjan dag í dag. Búist er við að 100 þúsund manns komi í miðborgina í kvöld og verður aðbúnaður lögreglu efldur fram yfir flugeldasýninguna klukkan 11 í kvöld.

Miðbærinn er lokaður fyrir bílaumferð og er ókeypis í strætó fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Egill Bjarnason, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að hátíðarhöldin hafi gengið mjög vel. Mikill mannfjöldi hafi komið í bæinn í morgun þegar Reykjavíkurmaraþonið fór fram. Tveir hafi verið fluttir til aðhlynningar af slökkviliði en annars hafi maraþonið gengið vel og lítið beðið um aðstoð.

Lögreglan segir að flestir virði það að bílaumferð sé ekki leyfð um miðbæinn og að reglum um bílastæði verði að fylgja þó að auðvitað sé alltaf eitthvað um það að menn leggi þar sem ekki má og fái sekt í samræmi við það. Fólksfjöldinn er dreifður um Þingholtin og Kvosina og áætlaði Egill að 40-50 þúsund manns væru í miðbænum um fjögur-leytið í dag. 

Löggæsla verður efld fyrir kvöldið og framyfir flugeldasýninguna. Lögreglan er með gönguhópa á ferli um bæinn og lögreglumenn á mótorhjólum, slökkviliðið er á ferðinni ásamt fulltrúum Landsbjargar og starfsmönnum borgarinnar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku