U18 sigraði Slóvaka á EM
Fyrst birt: 18.08.2012 18:25, Síðast uppfært: 18.08.2012 18:27
Flokkar: Körfubolti, Íþróttir

Íslensku strákarnir leika um 13. sætið á mótinu á morgun
Íslenska U18 ára landslið karla í körfuknattleik vann Slóvaka 74-59 í B-deild Evrópumótsins í Sarajevó í Bosníu-Herzegóvínu í dag og leikur því um 13. sætið á morgun gegn annað hvort Svíum eða Rúmenum.
Þorgrímur Kári Emilsson skoraði 14 stig fyrir íslenska liðið og tók 8 fráköst, Valur Orri Valsson bætti við 13 stigum og 1 frákasti og Martin Hermannsson 9 stigum og 3 fráköstum en Emil Karel Einarsson var með 8 stig og 7 fráköst.
Leikurinn um 13. sætið á morgun hefst klukkan 11.00 að íslenskum tíma.
Nánar má lesa um leik dagsins á heimasíðu Körfuknattleikssambandsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













