U18 gerði jafntefli við Frakka á EM
Fyrst birt: 15.07.2012 13:49, Síðast uppfært: 15.07.2012 13:50

Íslenska U18 ára landslið karla í handknattleik gerði jafntefli við Frakka 28-28 í þriðja og síðasta leik sínum í riðlakeppninni á Evrópumótinu í Austurríki í dag en hálfleikstölur voru 16-15 Íslandi í vil.
Janus Daði Smárason skoraði átta mörk og þeir Ólafur Ægir Ólafsson og Arnar Feyr Dagbjartsson fimm mörk hvor, Starri Friðriksson og Stefán Darri Þórsson gerðu fjögur mörk en Adam Baumrak og Valdimar Sigurðsson voru báðir með eitt mark. Ágúst Elí Björgvinsson varði tíu skot í íslenska markinu og Bjarki Snær Jónsson fjögur skot.
Íslenska liðið leikur um 9.-16. sæti á mótinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












