Tyrkland:13 fórust í fangelsisbruna
Fyrst birt: 17.06.2012 01:32, Síðast uppfært: 17.06.2012 06:16
Flokkar: Erlent

Eldur í álmu fangelsis í Suðaustur-Tyrklandi kostaði að minnsta kosti 13 fanga lífið í gær. Um þúsund fangar eru þar í haldi, þar af margir kúrdískir þjóðernissinnar, bæði skæruliðar Verkamannaflokks Kúrda, PKK, og aðrir, þar á meðal einn þingmaður.
Allur aðbúnaður er afleitur í fangelsinu og þrengsli mikil. Nokkrir fangar í álmu fyrir almenna glæpamenn efndu til mótmæla og uppþots í gær, einhverjir kveiktu í ábreiðum og öðrum rúmfötum. Þeir sem létust köfnuðu í reykjarkófinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













