Tveir teknir vegna heimilisofbeldis
Fyrst birt: 28.01.2012 07:15, Síðast uppfært: 28.01.2012 13:59

Tveir karlmenn um fertugt voru handteknir í nótt vegna heimilisofbeldis. Báðir búa mennirnir í austurborg Reykjavíkur en málin tengjast ekki.
Mennirnir voru báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru handteknir með klukkutíma millibili. Fyrra málið kom upp klukkan 3.30 í nótt og hið síðara 4.28. Talið er að kona hafi handleggsbrotnað af völdum annars mannins en hitt málið er ekki eins alvarlegt samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







