Tveir hengdir í Japan í nótt
Fyrst birt: 03.08.2012 07:46, Síðast uppfært: 03.08.2012 07:46

Japönsk stjórnvöld tóku aftur upp dauðarefsingar í mars eftir 20 mánuða hlé. Mynd: Getty images.
Tveir fangar voru teknir af lífi í Japan í nótt, að sögn dómsmálaráðuneytis landsins. Yfirvöld hafa samtals tekið fimm manns af lífi á þessu ári.
Mennirnir tveir voru hengdir, annar fyrir að ræna og nauðga nítján ára gamalli stúlku árið 2002 og myrða hana síðan á hrottafenginn hátt, hinn fyrir að drepa tvo ættingja sína árið 2007 og stela fjármunum fórnarlambanna.
Japönsk stjórnvöld tóku aftur upp dauðarefsingar í mars eftir 20 mánaða hlé. Ásamt Bandaríkjunum er Japan eina þróaða lýðræðisríkið sem beitir dauðarefsingum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












