Prenta frétt

Senda frétt

Tveir ákærðir fyrir amfetamínsmygl

Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn um fertugt fyrir að flytja inn fjögur kíló af amfetamíni. Efnin komu frá Hollandi með Arnarfelli 12. janúar á þessu ári.

Lögreglan handtók annan manninn skömmu eftir að hann sótti fíkniefnin um borð. Gerviefni voru sett í staðinn og að beiðni lögreglunnar afhenti maðurinn þau hinum manninum sem ákærður var í málinu. Samkvæmt ákærunni höfðu mennirnir tveir hist nokkrum sinnum í lok síðasta árs og skipulagt smyglið. Annar mannanna er í Kópavogsfangelsi - hinn á Litla Hrauni.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta