Tveggja ára fangelsi

Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna (VSP) var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til fjársvika. Hann gaf út falsaða yfirlýsingar og skjöl vegna ábyrgðar á skuldabréfaútboði félagsins Napis í Kauphöllinni í Guernsey.
Með því var látið líta út fyrir að Napis ætti um 680 milljónir bandaríkjadala eða um 85 milljarða króna og á þeim grundvelli gaf fyrirtækið út skuldabréf. Viggó Þórir átti 25% hlut í Napis.
Þá hafi Viggó Þórir reynt að blekkja Bank of Scotland þegar hann kvittaði uppá innlánsskírteini sem sýndi að Napis ætti 200 milljónir bandaríkjadala. Skírteinið átti að nota sem veð eða tryggingu fyrir lánasamningi. Segir í dómnum að þetta hafi Viggó gert þrátt fyrir að vita að engin innistæða væri á reikningi Napis.
Fyrir dómi gaf Viggó ýmist engar skýringar á gögnunum eða skýringarnar voru ekki í samræmi við framburð hans í málinu. Segir í dómnum að líta skuli til einbeitts brotavilja Viggós og að um afar háar fjárhæðir sé að ræða. Þá er litið til þess að verknaðurinn leiddi til þess að starfsemi VSP var lögð niður. kemst dómurinn að því að með hátterni sínu hafi Viggó gerst sekur um að beita blekkingum í auðgunarskyni og í þágu fyrirtækisins sem var að hluta til í hans eigu.
Viggó var hins vegar sýknaður af ákæru um umboðssvik.
Fimm ár eru liðin frá því að málið kom upp og sat Viggó meðal annars í farbanni lengur en nokkur annar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












