Túrkmenar kjósa forseta
Fyrst birt: 12.02.2012 14:56, Síðast uppfært: 12.02.2012 15:32

Túrkmensk kona gengur að kjörborði. Mynd:AFP/Nordic Photos.
Forsetakosningar eru hafnar í Túrkmenistan. Fastlega er búist við því að Kurbanguly Berdymukhamedov nái endurkjöri. Sjö aðrir frambjóðendur eru í kjöri en allir hafa þeir borið lof á Berdymukhamedov forseta í aðdraganda kosninga.
Öryggis og samvinnustofnun Evrópu fylgist ekki með kosningunum, stofnunin hefur gagnrýnt forsetann fyrir að lítið beri á lýðræðislegum endurbótum. Forsetinn er svo til einvaldur í Túrkmenistan og alls staðar nærri. Myndir af honum prýða allt frá flugvélum til veitingastaða. Þrátt fyrir gagnrýni mannréttindasamtaka hafa Evrópusambandsríki átt í töluverðum viðskiptum við Túrkmenistan, sem býr yfir ríkulegum gasforða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







