Túlkur í tösku

Spjaldtölvur geta breytt lífi heyrnarlausra verulega. Þær hafa orðið til þess að þeir geta farið erinda sinna án þess að hafa með sér túlka. Heyrnarlausir geta nú haft með sér spjaldtölvur í stað túlka og er þessi nýja tækni bylting í lífi þeirra sem hana nota.

Túlkur í tösku, er nýtt verkefni hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra. 

Heiðdís Dögg Eiríksdóttir er nýbúin að eignast sitt þriðja barn. Hún hefur mælt sér mót við einkaþjálfara í heilsuræktarstöð. Venjulega hefði hún þurft að hafa með sér túlk, en núna er hún með spjaldtölvu og 3g kort. Á  samskiptamiðstöð heyrnarlausra eru túlkar á vakt og þegar hún er komin á staðinn lætur hún tölvuna hringja þangað.

 Heiðdís er að nota spjaldtölvu í fyrsta sinn og bindur miklar vonir við hana. Hún muni nýtast við margs konar og fjölbreyttar aðstæður. Í bönkum, hjá lækni, í viðtölum og skóla. 

Samskiptamiðstöðin fyrir heyrnarlausa á nokkrar spjaldtölvur sem hún lánar  og er ein þeirra núna hjá sjúklingi sem liggur á sjúkrahúsi. Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður  Samskiptamiðstöðvar segir að heyrnarlausir þyrftu að eignast svona tæki. Þá held ég að þetta yrði bæði til sparnaðar hjá miðstöðinni og myndi auka möguleika hjá þeim heyrnarlausu. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku