Tugþúsundir á Fiskideginum mikla
Fyrst birt: 11.08.2012 19:41, Síðast uppfært: 11.08.2012 19:41

Talið er að um 20 þúsund manns hafi verið á Fiskideginum mikla á Dalvík um helgina. Þessi mikla matarhátíð er nú haldin þar, tólfta árið í röð.
Það var nánast sama hvar borið var niður á Dalvík í dag, alls staðar var fólk og húsbílar og tjöld á flestum lausum grasblettum. Á Fiskideginum mikla er hafnarsvæðið miðpunkturinn og matarboðin gerast varla stærri. Boðið er upp á fisk og annað sjávarfang í allskyns útgáfum og allt er ókeypis. Enn hefur Dalvíkingum tekist að laða til sín fólk úr öllum áttum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














