Tour de Ormurinn keppninni lokið
Fyrst birt: 12.08.2012 16:22, Síðast uppfært: 12.08.2012 16:22

Fyrstu þrír i 68 km hringnum í Tour de Ormurinn. Mynd: UÍA.
Síðasti keppandinn í hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn á Fljótsdalshéraði kom í mark á fjórða tímanum í dag. Hjólaður var svokallaður Fljótsdalshringur. Keppt var í tveimur vegalengdum, 68 og 103 kílómetrum.
Unnsteinn Jónsson kom fyrstur í mark af þeim sem hjóluðu lengri hringinn, eða á 4:02:31 klukkustundum. Valdemar Valdemarsson var annar og Freyr Ævarsson þriðji. Stefnt er að því að halda keppnina aftur á næsta ári.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












