Tvískinningur í ógöngum Hörpu.



  • Prenta
  • Senda frétt

Hjörleifur Stefánsson arkitekt ritar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni Tvískinnungur í ógöngum Hörpu. Þar skrifar hann að það hafi blasað við fyrir margt löngu að fjárhagslegar forsendur að baki byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu stæðust ekki.

Hjörleifur kynntist undirbúningi að byggingu tónlistarhúss náið sem verkefnastjóri eins hópsins sem var valinn til að taka þátt í samkeppni um tillögu að húsinu og gera tilboð i byggingu og rekstur þess – en franski arkitektinn Jean Nouvel vann með þeim hópi  tillögu að húsi sem minnti einna helst á náttúrulegan hól.  Sérfræðingar innan teymisins komust að því að  fjárhagsdæmið gengi ekki upp – ekki væri hægt að reka húsið miðað við þau fjárframlög sem ríki og borg áætluðu til rekstursins og miðað við þá stærð sem gert var ráð fyrir í keppnislýsingu. Forsvarsmenn Viðhafnar, en svo hét hópurinn sem Hjörleifur stýrði, viðruðu áhyggjur sínar við Austurhöfn, sem átti að sjá til þess að hrinda byggingaráformum í framkvæmd og spurðu hvort þeim væri heimilt að gera tillögu að minna húsi en því var hafnað –eins og kunnugt er var svo valin tillaga að húsi sem varð enn stærra og dýrara á byggingartímanum en gert hafði verið ráð fyrir í keppnislýsingunni. Víðsjá hitti Hjörleif að máli fyrr í dag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku